Laugardaginn 28. nóvember:
Garðatorgi, Garðabæ kl. 16.00: Kveikt á jólatrénu frá vinabænum Asker. Margit F. Tveiten sendiherra Noregs á Íslandi afhendir tréð fyrir hönd Askerbúa.
Sunnudaginn 29. nóvember:
Austurvelli, Reykjavík kl. 16.00: Kveikt á jáolatrénu frá Osló en í ár eru liðin 58 ár síðan Oslóarbúar færðu Reykvíkingum í fyrsta sinn jólatré. Aud Kvalbein varaborgarstjóri Oslóarborgar afhendir tréð fyrir hönd Oslóarbúa.
Laugardaginn 5. desember:
Reykjanesbæ kl. 18.00: Kveikt á jólatrénu frá vinabænum Kristiansand. Thomas Lid Ball sendiráðsritari Norska sendiráðsins á Íslandi afhendir tréð fyrir hönd Kristiansandsbúa.