Þann 4. ágúst nk. eru liðin 150 ár frá fæðingu rithöfundarins Knuts Hamsuns sem af mörgum er talinn mesta skáld Norðmanna en hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1920. Í tilefni þess verður mikið um hátíðahöld á árinu í Noregi og annars staðar - meðal annars á Íslandi.
Stundum hefur því verið haldið fram að enginn erlendur rithöfundur hafi haft meiri áhrif á íslenskar nútímabókmenntir en Knut Hamsun. Tólf bækur eftir Knut Hamsun hafa verið þýddar á íslensku og orðið vinsælar og dáðar, s.s. Sultur, Gróður jarðar, Loftskeytamaðurinn og Pan, svo að fáeinar séu nefndar. Kvikmyndir sem byggjast á bókum Hamsuns hafa sömuleiðis notið vinsælda meðal Íslendinga.
Hátíðin er styrkt af Norska sendiráðinu á Íslandi og verkefnisstjóri hátíðarinnar er Ellen Marie Fodstad.
30. april: Hátiðin sett í Borgarbókasafni Reykjavíkur
Opnun á sýningu á bókum Hamsuns í Borgarbókasafni Reykjavíkur kl. 17.00. Sendiherra Noregs á Íslandi, Margit Tveiten býður gesti velkomna. Sigurður Skúlason leikari les smásögu eftir Hamsun. Léttar veitingar.
Í aðalsafni Borgarbókasafns við Tryggvagötu verður verkum Hamsuns gert hátt undir höfði frá 30. apríl til 17. maí. Verður bókum hans, bæði íslenskum þýðingum og verkum á öðrum málum, stillt upp og eins verður vakin athygli á skrifum um skáldskap Hamsuns hér á landi og tengslum hans við íslenskar bókmenntir og rithöfunda. Á sýningunni verða einnig ljósmyndir eftir Ellen M. Fodstad sem hún tók á Íslandi og í Noregi, en hugmyndin að þeim er sótt í skáldsögu Hamsuns, Pan, sem fyrst var gefin út árið 1894.
30. apríl til 17. maí: Bækur Hamsuns og ljósmyndasýning
Syningar á bókum Hamsuns og ljósmyndasýningin Pan verða einnig settar upp 30. apríl til 17. maí á Amtsbókasafninu á Akureyri, Bókasafninu á Húsavík, Bókasafni Vestmannaeyja, Bæjar- og héraðsbókasafninu á Ísafirði, Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi (1.-18. október), Bókasafninu á Höfn í Hornafirði, Bókasafninu í Hveragerði, Bókasafninu í Norræna húsinu.
Bækur Hamsuns liggja einnig frammi í bókaverslun Eymundsson, Austurstræti.
5. og 9. maí: Kvikmyndasýning í Bæjarbíói
Danska kvikmyndin, Sultur (1966) eftir samnefndri bók Hamsuns í leikstjórn Hennings Carlsen, verður sýnd í Bæjarbíói, Hafnarfirði, á vegum Kvikmyndasafns Íslands, þriðjudaginn 5. maí kl. 20:00 og laugardaginn, 9. maí kl. 16:00. Helstu leikarar í myndinni eru: Per Oscarson, Gunnel Lindblom og Birgitte Federspiel.
6. mai: Leiklestur i Norræna húsinu
Trond Giske, menningar- og kirkjumálaráðherra Noregs flytur ávarp. Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Þórir Sæmundsson lesa úr verkum Knuts Hamsuns Grónum götum og Viktóríu: ástarsögu í Norræna húsinu kl. 19.30. Léttar veitingar.
2. og 3. október: Hamsun-ráðstefna i Norræna húsinu
Háskóli Íslands og Norska sendiráðið standa fyrir málþingi um Knut Hamsun dagana 2-3. október í Norræna húsinu. Fluttir verða fyrirlestrar og hugleiðingar um líf og verk Knuts Hamsuns og áhrif hans á norskar og íslenskar bókmenntir.
Aðgangur er ókeypis á alla viðburði hátiðarinnar.