A | A | A
Beate Grimsrud og Tiril Myklebost Foto: Sendiráðið/PRLBeate Grimsrud og Tiril Myklebost. Foto: Sendiráðið/PRL

Rithöfundurinn Beate Grimsrud í Norræna húsinu 9. júní

Norski rithöfundurinn Beate Grimsrud sem tilnefndur var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir skáldsöguna En dåre fri var gestur á bókmenntakvöldi í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. júní.  Kynnir var Tiril Myklebost sendikennari í norsku við Háskóla Íslands.

Beate er fædd 1963 í Bærum í Noregi en fluttist ung að aldri til Svíþjóðar þar sem hún er búsett í Stokkhólmi. Bæði Norðmenn og Svíar líta á Beate sem sinn og var hún tilnefnd til Bókmenntaverðlaunanna nú af báðum löndunum. Beate hefur áður verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs en það var árið 2000 fyrir bókina Å smyge forbi.