Elin Myrmel-Johansen flutti erindi
Á morgunverðarfundi Útflutningsráðs Íslands og Háskólans í Reykjavík miðvikudaginn 2. apríl á Grand Hótel flutti Elin Myrmel-Johansen, framkvæmdastjóri hjá Storebrand, Noregi, erindið: Corporate Responsibility - from challenges to opportunities.
Aðrir fyrirlesarar voru Páll Ásgeir Davíðsson, sérfræðingur hjá Háskólanum í Reykjavík, Henrik Marstrand, framkvæmdastjóri Mater a/s, Danmörku og Ragna Sara Jónsdóttir, sérfræðingur hjá utanríkisráðuneytinu.
Fundarstjóri var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.